Vöruúrval
Hestavörur, landbúnaðarvörur frá Patura, kerruvarahlutir og fleira. Kerrurnar sjálfar finnur þú undir Kerrur.

Cemtec skeifur með uppslætti
Sænskar skeifur með 8 og 10 mm uppslætti, framleiddar samkvæmt reglum FEIF.

Skaflar
Skaflar í þremur stærðum: 12, 15 og 17 mm.

Hóffjaðrir
Hóffjaðrir frá Cemtec í Svíþjóð, í venjulegum og slim stærðum.

Járningavörur
Verkfæri, fyllingarefni og hófbotnar úr leðri og plasti.

VERDO spónakögglar
Undirburður sérstaklega meðhöndlaður fyrir hross. Vinnur á móti ammoníaksmyndun og sveppagróðri.

Gafflar með álskafti
Sterkir og vandaðir gafflar í spóninn eða spónakögglana. Sænsk hönnun og framleiðsla.

Quittpad undirdýnur
Undirdýnur sem lofta frábærlega um bak hestsins. Fjöldi fremstu knapa Evrópu notar þær.

IPEA hreinsi- og snyrtivörur
Tagl- og faxgljái, sjampó, leðuráburður, hófolía og lúsa- og óværueyðandi efni.

Patura hringgerði
Heitgalvaniseraðar grindur, 1,70 m háar, settar saman með keðjum án verkfæra.

Fóðurstallar
Fóðurstallar úr plasti og heitgalvaniseraðir.

Fötur og skóflur
11 lítra fata með hönkum og skófla í fóðrið.

Patura P1 rafgirðingaspennir
Fyrir bæði 12 og 230 V, með 5 km drægni í fjölvír.

Rafgirðingaspennar
Rafgirðingaspennar í miklum gæðum og góðu úrvali, m.a. P3800 og P6000.

Hliðgrindur
Öflugar heitgalvaniseraðar hliðgrindur allt að 6 metrum, með lömum, boltum og læsingu.

Brynningaskálar
Brynningartæki fyrir búpeninginn, úti sem inni.

Gjafagrindur
Gjafagrindur af ýmsum gerðum og heitgalvaniseraðir gjafahringir.

Grindur fyrir sauðfé
Grindur sem læsast saman á endunum. Sniðugt að gera hólf með þeim.

Innréttingar í lausagöngufjós
Innréttingar í gripahús og lausagöngufjós.

Yfirbreiðslunet á kerrur
Net yfir farminn, í ýmsum stærðum.

Álbrautir
Léttar álbrautir frá 400 kg burðargetu pr. par og upp í 4,0 tonn.

Bílalyftur
2ja pósta bílalyftur með 4,0 tonna lyftigetu og rafmagnssegullæsingum.
Burstagrind
Hreinsar skófatnaðinn áður en komið er inn úr leirnum, sandinum eða af grasinu.
Vantar þig kerru, varahlut eða hestavörur?
Sendu okkur línu og við gerum þér tilboð, eða kíktu í heimsókn á Desjamýri 14.
