Kerrur
Brimco hefur selt kerrur síðan 1995: heimiliskerrur, flutningakerrur, tækjakerrur, bílakerrur, hestakerrur, golfbíla- og fjórhjólakerrur, sturtukerrur og yfirbyggðar kerrur. Kerrur frá Unsinn og hestakerrur frá Blomert og Schmidt í Þýskalandi.

Eins öxla kerrur
Vandaðar kerrur með álskjólborðum, smíðaðar á þýskar ALKO 750 kg hásingar.

Tveggja öxla kerrur
Gæðakerrur frá Unsinn með álskjólborðum, ALKO hásingum og beisli.

Tækjakerrur
Tveggja öxla kerrur fyrir hin ýmsu tæki, með eða án uppákeyrsluhlera og brauta.
Yfirbyggðar kerrur
Yfirbyggðar kerrur á einum eða tveimur öxlum að óskum kaupanda. Burðargeta 750–3.500 kg.
Farangurskerrur
Með eða án bremsu, eins eða tveggja öxla. Yfirbygging úr lituðu áli, opnanleg að eigin vali.
Hestakerrur
Þýskar hestakerrur fyrir 2, 3 og 5 hesta frá Blomert og Schmidt, með álfelgum og varadekki.

Golfbílakerrur
750 kg hallanleg kerra án bremsu og 1.350 kg kerrur með bremsum og á númerum.

Fjórhjóla- og snjósleðakerrur
Kerrur fyrir fjórhjól og snjósleða.
Sérsmíði og sérverkefni
Bjóðum upp á sérsmíðaðar kerrur, t.d. yfirbyggðar kerrur eða það sem þér dettur í hug.

Áttu kerru sem þú vilt selja?
Við tökum notaðar kerrur og hestakerrur í umboðssölu. Reiknaðu sölulaunin og sjáðu kerrur sem hafa selst hjá okkur.
Notaðar kerrur og umboðssala
Skoðaðu úrval framleiðenda
Við erum í samvinnu við framleiðendurna og getum útvegað aðrar gerðir eftir þörfum.
Finnum réttu kerruna saman
Kíktu í heimsókn til að leita lausna eða fáðu verðtilboð.
