Patura hringgerði
Hringgerði frá Patura í Þýskalandi sem hægt er að hafa úti sem inni. Grindurnar eru 1,70 m háar, smíðaðar úr flötum og rúnnuðum prófíl og heitgalvaniseraðar sem tryggir endingu og gæði.
Grindurnar eru aðeins festar saman með keðjum: engin verkfæri og engir lausir hlutir sem gætu týnst. Það tekur um 10 mínútur að taka gerðið niður og setja það upp. Algengasta stærðin er 12 metrar í þvermál.
Gerðin eru á mörgum hrossabúgörðum, tamningastöðvum og í flestum betri reiðhöllum landsins. Grindurnar má líka nota sem hólf eða rétt fyrir hross, naut eða sauðfé.
| Framleiðandi | Patura, Þýskalandi |
|---|---|
| Hæð grinda | 1,70 m |
| Algengasta stærð | 12 m í þvermál |
| Uppsetning | Um 10 mínútur, án verkfæra |
| Áferð | Heitgalvaniserað |
Fleira í hestavörur
Sjá allt →
Cemtec skeifur með uppslætti
Sænskar skeifur með 8 og 10 mm uppslætti, framleiddar samkvæmt reglum FEIF.

Skaflar
Skaflar í þremur stærðum: 12, 15 og 17 mm.

Hóffjaðrir
Hóffjaðrir frá Cemtec í Svíþjóð, í venjulegum og slim stærðum.

Járningavörur
Verkfæri, fyllingarefni og hófbotnar úr leðri og plasti.
Vantar þig kerru, varahlut eða hestavörur?
Sendu okkur línu og við gerum þér tilboð, eða kíktu í heimsókn á Desjamýri 14.
